Grein í mbl. 10.feb.2004.
Raki
Frá Gesti Gunnarssyni
tæknifræðingi
Einu sinni var maður sem hét Dalton. Eitt af því sem hann fékkst við voru veðurathuganinr.
Dalton fór að velta því fyrir sér hvers vegna ský myndast.
Þegar loftið kólnaði kom þoka. Það er vegna þess að í andrúmsloftinu er örlítil vatnsgufa,
og því heitara sem loftið er rúmast í því meiri gufa. Þetta er kallað Daltons lögmál.
Tuttugu gráða heitt loft getur borið 14 grömm af vatnsgufu, ef 7 grömm af gufu eru í loftinu,
þá er sagt að loftið sé 50% rakt. Það er einmitt við þennan hlutfallslega raka sem
mannslíkaminn virkar best.
Einhvern tímann fór sá misskilningur af stað hér á landi, að heppilegast heilsunnar vegna væri að
sofa við opinn glugga og svo ætti að vera nóg af fersku lofti alls staðar.
Undanfarna daga hefir útihiti verið mínus tíu gráður, slíkt loft getur aðeins borið tæp tvö grömm
af vatnsgufu, svo þegar það er hitað upp í tuttugu gráður verður hlutfallslegi rakinn aðeins 10%.
Við þær aðstæður verður rakatap mannslíkamans mikið og ýmsir kvillar fara á kreik.
Til þess að halda uppi hæfilegri loftun í meðalherbergi hér norðurfrá er nægjanlegt að hafa rifu út,
sem er svona einn sinnum tuttugu sentimetrar. Ef einhver vill skoða svona rétt hönnuð vindaugu,
þá eru þau fyrir ofan gluggana á kaffi Nauthól. Húsið sem veitingastofan er í kom nefnilega tilbúið
frá Noregi en þar í landi verða sáralítil afföll af fólki þó að aðeins kólni í veðri.
Gestur Gunnarsson
Flókagötu 8,
Reykjavík.
Til baka